Mamma þín er bloggari!!
27.02.2005 11:10:40 / isaksb

Myrkvaður himinn horfði á mig nálgast...


Ég smeygði mér í frakkann, reimaði skóna og steig út fyrir dyrnar á Eggertsgötunni. Það var komin kvöldsnerpa í loftið svo að ég sveipaði að mér frakkanum og renndi honum upp. Læsti dyrunum og hélt sem leið lá niður á bílastæði. Settist inní kaggann og ræsti hann. Ljón götunnar malaði, eins og til að segja mér að hann gleddist yfir þessum bíltúr, en á sama tíma fannst mér hann urra í mótmælatón. Ég hristi af mér óþægindin, glotti við tönn og hélt af stað.

Ég ók nokkra stund og hlýddi á Pantera sem einhver var svo vænn að spila í útvarpinu. Eftir því sem ég ók lengra magnaðist með mér óþægileg tilfinning, mér fannst eins og ég væri að taka óþarfa áhættu með þessari ferð. Hvaða erindi á ég svosem á slíkan stað þegar öllu er á botninn hvolft? Ég sveigði útá afreinina og vissi að það varð ekki aftur snúið - það var bannað að taka U-beygju.

Eftir því sem nær dró fann ég hvernig hjartslátturinn í brjósti mér varð þyngri og hraðari. Ég fann hrollinn hríslast niður mænuna þegar ég sveigði loks inná planið hjá "þeim stóra". Ég lagði í stæði og sneri skjálfhentur lyklinum rangsælis í svissinum. Vélarhljóðið dó út. Það gerði útvarpið líka. Nú fyrst heyrði ég einkennishljóð svæðisins - sírenuvæl sem virtist koma úr öllum áttum. Ég fann sárt til þess að ég var kominn langt að heiman. Ghettoið er dimmur staður.

Dixi


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.02.2005 23:21:32 / isaksb

I'm neither nowt nor summat...


Til að byrja með vil ég þakka öllum sem voru svo vænir að taka þátt í skoðanakönnuninni minni og sýna framá með óyggjandi hætti að hátt hlutfall þeirra sem lesa þessa síðu eru alvarlega veikir á geði. Niðurstöðurnar voru sumsé þessar:

Það er merkilegur andskoti hvað það gengur illa að koma hlutunum frá sér. Í hvert skipti sem ég sest niður til að blogga er ég með háleit markmið um hvernig ég geti miðlað til umheimsins því sem er að velkjast um í höfðinu á mér hverju sinni, en alltaf rek ég mig á sama vegginn. Þegar ég er búinn að skrifa það sem ég er að hugsa og les það, til öryggis, aftur yfir, átta ég mig á því að það er ekki fræðilegur möguleiki að nokkur utanaðkomandi skilji hvað ég er að tala um. Til þess að umfjöllunin fái samhengi þarf nefnilega fólk að hafa aðgang að því sem ég hef upplifað nýverið og helst samanburð við fyrri reynslu og aðstöðu til að finna hvernig mér líður þegar... OK mér tekst ekki einu sinni að koma þessu frá mér á skiljanlegu formi, svo ég gefst upp... næsta mál á dagskrá:

Var að koma úr verklegri efnagreiningu um daginn og labbaði á milli VR-I og Letigarðs, eins og svo oft áður, og þar var kasólétt kona að reykja eins og strompur!! Hvað er að þessu liði?! Ég fyllist viðbjóði af að horfa á þetta helvíti. Látum vera þó að fólki takist með einhverjum undraverðum hætti að hunsa allar þær upplýsingar sem eru til í dag um skaðsemi reykinga og stofna sér í stórhættu með einhverju jafn kostnaðarsömu og viðurstyggilega heimskulegu eins og þessu! En mér finnst lágmark að sýna ófæddum börnum sínum þá virðingu að gera þau ekki háð nikótíni á fósturskeiði!! Hvað er í gangi?!

Frábært. Nú er ég kominn í vont skap og fer að hugsa um hluti sem mér er illa við. Yfirborðskennd. Er eitthvað verra en yfirborðskennt fólk? Ég get fyrirgefið alls kyns karakterbresti (sem betur fer, annars væri ég uppfullur af sjálfshatri) en yfirborðskennd finnst mér algerlega óþolandi. Fólk sem að getur ekki verið það sjálft af hræðslu við að það fái ekki viðurkenningu annarra yfirborðskenndra aumingja sem meta alla útfrá því hvað er dýrt merki á gallabuxunum þeirra! Ég hata ykkur helvítis snobbpakk!

Nú ætla ég að hætta að skrifa og fara og taka til á meðan ég get gengið fyrir innbyrgðri bræði áður en ég skrifa eitthvað sem særir einhvern sem á það ekki skilið eða eitthvað álíka skemmtilegt...

Dixi

P.S. Djöfull er Amélie viðurstyggilega frábær mynd!


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2005 10:45:17 / isaksb

Muuuuundu eftir mjólkinni...


Síðastliðna helgi dvaldi ég á Akureyri hjá ástkærri ástkonu minni í sambýlisaðstöðu hennar og Birgittu (Skyrbyttu) Stefánsdóttur. Niðurstaða þeirrar ferðar: Hlutir breytast. Það er orðið um hálft ár síðan ég hef komið til Akureyrar, en svo langt hefur ekki liðið milli Akureyrarferða hjá mér í ein 12-14 ár. Ótrúlegur andskoti. Vistin er ekki eins og vistin var. Válegir atburðir hafa átt sér stað. Þeir sem muna hlutina eins og þeir voru eru deyjandi hópur. Risaeðlur. Ég er klökkur.

Eins og venjulega kom maður ekki í verk nema broti af því sem maður ætlaði sér, en hafði það þó af að skreppa í bíó með Hildigunni og heimsækja heimilisfólkið í Grænumýrinni eftir alltof langt hlé.

Bíóferðin var hin skemmtilegasta, enda Meet the Fockers bráðskemmtileg mynd sem skartar álitlegum leikarahóp. Ef þú hefur gaman af að hlæja að hlutum sem eru ekki endilega jafn djúpir og textinn við Rose of Sharyn, þá er Meet the Fockers sennilega mynd fyrir þig.

Setti inn "nýjan" vef á háskólasvæðið mitt fyrir helgina. Er að vinna í að laga það sem betur má fara á honum. Set núna jafn óðum inn nýjar efnagreiningarskýrslur og bætti við einhverjum myndum og drasli. Nýtt útlit. Spekkaðu það frekar en að lesa þetta. Of seint. Búin/n að lesa þetta. Amlóði.

Í gær gerðust svo álitlegir atburðir. Ný tölva. Já. Fast.

Og í anda dagsins: Sökum slakra sönghæfileika og ónógs metnaðar íslensks ungdóms gagnvart raddbandavæddum tónlistarflutningi nú um stundir geri ég það að tillögu minni að öskudagurinn verði frá og með deginum í dag kallaður öskurdagurinn.

Dixi


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.02.2005 00:24:03 / isaksb

Sorgarsaga...


Hún drakk með höndunum, og komst svo ekki í skóna.

Dixi


» 3 hafa sagt sína skoðun