Átti nokkuð viðburðaríkt kvöld.
Fór á Hótel Höfða þar sem Árni Viggó leigir. Þar var eitthvert
kveðjuhóf fyrir einhverja útlenska lufsu sem hét Banjo eða
eitthvað. Átti ákaflega róleg, en sennilega frekar móðgandi,
orðaskipti við einhverja tussu frá Sviss sem var að baktala Hjört,
því alla vega fór hún í haugafýlu við mig (sem var hið besta mál,
hún var helvítis hóra hvort sem er (-ekki baktala fólk sem mér
þykir vænt um svo ég heyri)).
Reyndi ítrekað en án árangurs að útskýra fyrir Nínu, með hjálp
Árna Viggós, hvernig málum er háttað í fjölskyldunni minni með
fyrri maka foreldra minna, hálfsystkinin, nafnið mitt og allt það.
Komumst að þeirri niðurstöðu að sennilega væri rétt að reyna að
útskýra þetta fyrir henni þegar hún væri örlítið minna drukkin.
Hélt að þessu loknu yfir í Kópavog með Hjört á Players. Hitti
þar fyrir utan einu bekkjarsystur mína úr fyrsta bekk grunnskóla,
sem ég hef ekki hitt í 5 ár.
Lagði af stað þaðan og vissi náttúrulega ekkert í minn haus. Hef
aldrei keyrt þarna áður og rata þar af leiðandi ekki "jack shit" á
þessu svæði. Byrjaði á því að keyra framhjá löggubíl, keyrði hring
til baka, beygði í vitlausa átt, sneri aftur við, beygði í aðra
vitlausa átt og var að snúa við þegar löggan kom. Blikkaði á mig.
Ég drap á bílnum, skrúfaði niður rúðuna og brosti, sá minn hag
vænkast nokkuð að geta spurt lögguna til vegar. Hún (reyndar hann)
spurði mig um ökuskírteini, hvort ég væri drukkinn, og hvort ég
væri nokkuð að laumast í hesthúsin af barnum - gæti hafa verið
bíllinn sem gaf það til kynna. En ég gerði mér lítið fyrir og
hrækti í augað á kalli, ræsti bílinn, gaf í botn, tók u-ara og
keyrði yfir helvítið!!! Nei, nei ég sagðist ekki hafa bragðað dropa
og fékk honum ökuskírteinið. Hann brosti bara og sagði voða
vinalega að hann ætlaði nú samt að láta mig blása til gamans. Þá
kemur bíll, á hvínandi siglingu og keyrir eins og fáviti framhjá.
Löggan segir að ég megi fara því hann vilji heldur ná hinu fíflinu,
stekkur inní löggubílinn og þeir þjóta burt. Ég sit eftir,
grautfúll yfir að hafa ekki fengið tækifæri til að spyrja til
vegar, ræsi bílinn og keyri sem leið liggur heim (reyndar hvorki
bein leið né gáfuleg, en það kemur málinu ekkert við (tókst
einhvern veginn að keyra í gegn hjá Laugardalslauginni á leiðinni -
hlýt að hafa lent í einhverjum ormagöngum eða eitthvað)).
Kveikti á tölvunni, klóraði mér í [setið inn orð hér] og settist
niður til að skrifa þessa frásögn.
Dixi
Það er samt ennþá flott að vera í svörtum fötum.