Mamma þín er bloggari!!
28.07.2005 18:10:08 / isaksb

Fluttur...

Fluttur á isaksigurjon.blogspot.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2005 14:06:35 / isaksb

Orðið dálítið síðan síðast

Hann er snúinn aftur!  Múhahah!

OK, ég er ömurlegur... en ég veit þó alla vegana af því.

Nú er ansi langt síðan ég bloggaði síðast og því ýmislegt sem hefur á daga manns drifið.  Mín reynsla er hinsvegar sú að það sé ákaflega leiðinlegt að lesa langar umfjallanir fólks á því hvað það er eða hefur verið að gera og því ætla ég að hafa það stutt:

  • Duran Duran - tær fokking snilld
  • Eftirlit með malardreifingu - ekki alveg jafn tær fokking snilld
  • War of the Worlds - fín
  • Batman Begins - miklu meira en fín
  • Ég - flottur

Reyni að koma með eitthvað uppbyggilegra á næstunni.

Dixi

    P.S. Ég hef borgið lífi mínu María Hrund, eins og sjá má...


    » 71 hafa sagt sína skoðun

    20.05.2005 11:37:04 / isaksb

    ...já nú styttist


    Prófin búin. Staðsetning mín þessa stundina: í tjillinu hjá tjellingunni. Ég ákvað sumsé að taka mér frí í 4 daga áður en ég byrjaði að vinna og skellti mér til Akureyrar í afslöppun og að aðstoða einn og annan við eitt og annað, en mestmegnis að gera nákvæmlega ekki neitt. Mmmmmm. Ekki neitt.

    Komið útúr 2 prófum. Annað kom betur út en hitt sem kom verr út en hitt sem kom ágætlega út. Athyglisvert að efnafræðin sem var eingöngu krossapróf og var jafnframt fyrsta prófið er enn ekki komið. Fokking Oddur. Mig vantar sigg. Sigg óskast á vísifingur vinstri handar og einnig á fingurgóma löngutangar, baugfingurs og litla fingurs á sömu hönd. Aflögufærir vinsamlegast hafi samband...

    Annar hluti hinnar sívinsælu framhaldssögu er nú í byggingu... ég fæ hroll af twistinu sem er í uppsiglingu.

    "To catch a rainbow, you have to put up with the rain."

    Dolly Parton

    And people say she's just a big pair of tits...

    Ójá og Jolene er snilldarlag. Djöfull sem Dolly Parton rokkar!

    Og talandi um að rokka þá var undankeppni Eurovision (júróvisjón eins og stóð á RÚV) sú versta sem nokkurn tíman hefur sést eða heyrst. Þvílíkur viðbjóður. Þetta var eins og léleg söngkeppni FF - meirihluti flytjenda sungu off-pitch og lögin voru leiðinlegri en Maður er nefndur. Ég hef aldrei verið aðdáandi þessarar keppni en ég held mér sé óhætt að segja að hún er á niðurleið - hvernig sem það er hægt.

    Anyways... vona að ég komi inn framhaldi á söguna seinna í dag. Annars held ég að ég sé að falla í leti.. en sjáum bara hvað setur.

    Dixi

    P.S. Will there ever be a boy, who can swim faster than a shark?!

    P.P.S. Púðraðu varlega fósturdóttir góð!


    » 58 hafa sagt sína skoðun

    03.05.2005 13:12:16 / isaksb

    ...en lífið heldur áfram...


    Kominn úr prófi í Stærðfræðigreiningu IIC. Gekk ekki alveg jafn vel og efnafræðin... en við sjáum nú bara hvað setur. Eða eins og enskurinn segir: "We'll cross that river when we get to it". Í millitíðinni hef ég ákveðið að byrja á framhaldssögu sem birt verður hér á blogginu og hér að neðan má finna fyrsta hluta.

    Ljós lands vors og lýða

    -fyrsti kafli

    Fyrir margt löngu stóð bær við Hrútafjörð sem kallaður var Kaldrani. Þar var, eins og nafnið gefur til kynna, ansi kuldalegt á stundum. En þó að veðrið nuddaði öll hús þar utan, var jafnan bjart og hlýtt í bænum. Á Kaldrana bjuggu ákaflega gestrisin hjón. Þau voru alltaf boðin og búin að hjálpa fólki og fús til að skjóta skjólshúsi yfir þá sem erfitt áttu uppdráttar. Förumenn áttu víst skjól á „Rananum”.

    Húsbóndinn á heimilinu hét Norberg, en var jafnan kallaður Gári, eftir páfagauknum sem hann gekk með í rassvasanum. Ektafrú Gára var Gudda, stór og feit bryðja með andlit sem leit út eins og það hefði verið lamið ítrekað með skóhorni. Opinberlega áttu þau hjónin einn son, en það var altalað um alla sýsluna að króginn væri alls ekki undan Gára, heldur ríkum bónda þar í sveitinni. Meinfýsnari raddir sögðu að barnið hlyti að vera eingetið, þar eð fyrir spiks sakir yrði erfitt fyrir nokkurn mann að komast nógu nærri Guddu til að fylja hana. Ekki það að maður fái séð að það sé hægt að fylja hana yfir höfuð. Hanar hafa hvorki leg né eggfrumur og því má segja að þetta sé allt saman ein allsherjar vitleysa. En nóg um það.

    Gári var hár maður (þ.e.a.s. hann var hávaxinn, ekki búinn til úr hári) og herðabreiður. Hann var sterkbyggður í meira lagi, enda hafði hann unnið erfiðisvinnu allt frá því hann var smápatti á Giljum í Vesturdal. Flesta daga var karlinn heldur alvörugefinn, en þó var hann manna vísastur til að fá fólk til að skella uppúr með gæskufullri kímni og einstakri orðheppni. Skáld var hann gott, og skrifaði oft og tíðum við ljós frá litlum, faggalegum vaxlampa, þegar aðrir voru gengnir til náða. Margt fleira var Gára til lista lagt – hann var á sinni tíð eini maðurinn í Hrútafirði sunnan Reykja sem kunni góð skil á þreföldum tegrum í sívalningshnitum og enginn maður annar ku hafa krossmargfaldað hlutafleiður vigra með tveim breytum af slíkri kostgæfni sem hann.

    Þegar þessi saga hefst er Gári orðinn gamall maður og hefur verið rúmfastur um nokkurt skeið, eftir að hafa misst alla útlimi í hræðilegu snjóþotuslysi. Við drepum niður þar sem Gudda flæðir (hugtakið situr á ekki við um neitt, eins víðfemt og hana (Guddu þ.e.a.s., ekki karlkyns hænu)) um rúmstokkinn hjá manni sínum og þrífur blóðuga stubbana sem áður voru hendur og fætur.

    -Þú hefðir betur hlustað þegar ég sagði þér að fara ekki allsber á snjóþotuna Gári minn!

    -Til hvers að lifa hartnær heila öld, ef maður ætlar aldrei að uppfylla þann eina draum sem haldið hefur í manni líftórunni?

    -Já, en fram af klettunum Gári minn?

    -Allt sem er þess virði að gera það á annað borð, er þess virði að gera það vel.

    -Já Gári minn. Það veit ég. Mér hefði bara þótt betra að þurfa ekki að gera þetta...

    Við svo búið dró Gudda gilda krukku með kalíumsýaníði uppúr föðurlandinu og mokaði uppí sig heilli lúku og kyngdi með það sama. Ekki leið á löngu áður en eitrið tók að virka og í dauðateyjunum ældi Gudda upp einum 15 lítrum af galli, magasýrum og blóði yfir Gára sem drukknaði samstundis í ælunni. Eru þau þá bæði úr sögunni.

    Framhald síðar...

    Dixi


    » 92 hafa sagt sína skoðun

    02.05.2005 01:06:53 / isaksb

    Góðar fréttir!


    Sæja er að lesa bloggið mitt, einmitt núna!

    Dixi


    » 4 hafa sagt sína skoðun

    29.04.2005 18:29:04 / isaksb

    Góð byrjun


    Þá er fyrsta prófið yfirstaðið. Almenn efnafræði 2 reyndist ekki sérlega erfið. Fínt að ganga vel í einhverju svona í upphafi - upplífgandi. Aftur á móti er stærðfræðigreiningin næst og maður er ekkert alveg jafn bjartsýnn á hana. En það er náttúrulega bara að gera sitt besta og taka niðurstöðunni hver sem hún verður. Ég nenni ekki að vera setja mig í eitthvert sálarstríð yfir þessu. Það fer eins og það fer...

    Gangi ykkur vel sem eruð í prófum og skemmtið ykkur vel sem eruð það ekki!

    Dixi


    » 3 hafa sagt sína skoðun

    26.04.2005 20:12:26 / isaksb

    ...og dauðinn þokast nær


    Hversu mikið er manni farið að leiðast þegar maður byrjar að tala við sjálfan sig á blogginu sínu? Djöfull sem ég nenni ekki að lesa meira.

    Næ ekki í konuna, nenni ekki að vaska upp, nenni ekki að læra, ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu, næ ekki í konuna og nenni ekki að læra og næ ekki í konuna og held áfram að skrifa til að gera eitthvað vegna þess hvað mér leiðist ÓGEÐSLEGA mikið. Djöfullinn.

    Kannski ég byrji að skrifa skáldsögu... hún gæti heitið Maðurinn sem byrjaði að skrifa skáldsögu vegna þess að honum leiddist svo mikið en samt gat hann ekki drullast til að finna almennilegan titil á söguna. Ég hef á tilfinningunni að svona bók myndi seljast vel. Séljast vél. Hvérsú ásnálégúr vérðúr téxtí éf máðúr vixlár a öllúm grönnúm og breiðúm serhljoðum? Nokkuð asnalegur.

    Ég ætla að fara og drekkja mér í klósettinu... þegar ég er búinn að pissa.

    Dixi


    » 6 hafa sagt sína skoðun

    26.04.2005 13:36:05 / isaksb

    Góð helgi...


    Síðasta helgi var yndisleg! Hildigunnur kom til mín á fimmtudag og var framá sunnudag. Besta helgi ég hef upplifað lengi - það eru allir hlutir betri þegar hún er nálægt! Við ætluðum náttúrulega bæði að vera voða dugleg um helgina, en það er bara svo miklu betra að slappa af saman. Ég fór í ansi skemmtilega verslunarferð með henni, þar sem meðal annars var keypt bikini... eins og áður sagði ansi skemmtileg verslunarferð! (áhugasamir hafi samband hre, hre, hre). Fékk mér líka tvenna nýja skó um helgina! Tvenna sömu helgina! Hvað er að gerast?!

    Annars vorum við mikið til heima við en fórum samt út að borða á Ítalíu á laugardagskvöldið. Djöfull sem að maður fékk súrrandi steik þar - hættulega gott. Enduðum svo helgina á umræðum um áhrif marxisma á heimsmynd nútímans... reyndar ekki bara til gamans, heldur er Hildigunnur að skrifa heimspekiritgerð um Marx. Skemmtilegt efni samt.

    Annars er ég loksins farinn að gera eitthvað í mínum málum hvað ofsöfnun fituvefs varðar. Búinn að fara út að hlaupa eða hjóla á hverjum degi núna, oftast hlaupa, og taka mig á með mataræðið líka. Djöfull sem maður finnur muninn um leið. Það er snilld að vera strax farinn að geta hlaupið 5 kílómetra án þess að vera að drepast úr mæði. This is the dawn of a new beginning!

    Prófin að skella á og próflesturinn hafinn. Skammtafræðin og "descriptive chemistry" ráða ríkjum þessa dagana enda efnafræðipróf á næsta föstudag. Næst er svo stærðfræðigreiningin - það verður blóðugt...

    Dixi

    P.S. Hildigunnur! Ég elllschka ðig!


    » 1 hafa sagt sína skoðun

    19.04.2005 02:35:15 / isaksb

    ...svo lengi lærir sem lifir


    „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur" segir máltækið.

    Stundum dugar það manni að hafa bara fengið innsýn inní hvernig það væri að missa til að skilja hvað maður á. Það hjálpar manni að átta sig á hvað skiptir mann mestu, endurmeta stöðuna og taka á málunum.

    Það er nefnilega til annað máltæki sem segir: „Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott!"

    Dixi


    » 14 hafa sagt sína skoðun

    14.04.2005 15:35:59 / isaksb

    Já takk


    Ég vil byrja á að þakka öllum sem hjálpuðu mér að skilja af hverju... mér líður miklu betur núna.

    Jón Gnarr hefur náð að endurheimta örlítið af virðingu minni eftir ágætis bakþanka í Fréttablaðinu í dag um unglinga.

    Eðlisfræðivinnubók var unnin á mettíma í gær... og það er ekki það eina góða við þessa vinnubók því þetta er að öllum líkindum síðasta eðlisfræðivinnubók sem ég geri við þennan skóla!

    Annars er að hægjast um í skólanum hvað skilaverkefni varðar. Sem væri gott ef maður vissi ekki að það er vegna þess hvað er ógeðslega stutt í próf. Gott og slæmt sennilega...

    Fer til Akureyrar um helgina að hitta blessaða konuna mína og sjá loksins Ríginn, MA-VMA söngleikinn sem hún er að leika og syngja í. Hlakka mikið til. Jafnvel þó að sýningin væri ekkert spes (sem mér skilst samt að hún sé (spes þ.e.a.s.)) er það næg ástæða til að fara á hana til að sjá Hildigunni með grænar túberaðar hárlengingar!

    Ætlaði að skrifa allan andskotann annan en ég man bara ekkert hvað það var svo að ég skrifa það bara seinna.

    Dixi


    » 1 hafa sagt sína skoðun

    13.04.2005 17:54:13 / isaksb

    ...


    Af hverju?!


    » 4 hafa sagt sína skoðun

    07.04.2005 17:09:58 / isaksb

    Kraftaverkin gerast enn...


    Hið ómögulega hefur nú átt sér stað. Ég var að koma úr eðlisfræðitilraun, sem væri svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að það var gaman. Já, það var gaman í verklegri eðlisfræði!! Það sannar sig að maður skyldi aldrei segja aldrei nema þá helst stundum kannski þegar næstum aldrei nægir ekki til að útskýra hversu ákveðið ekki maður er að reyna að tjá... eða þannig.

    Hvað sem öðru líður er þetta ótrúleg tilfinning! Svo kynngimögnuð raunar að ég ætla að taka til, þrífa og snúa einhverju við í íbúðinni minni, reyndar löngu orðið tímabært. Ég er að verða brjálaður á að hafa alltaf allt eins, ég þarfnast breytinga.

    Dixi

    P.S. Ég hef nú fengið það á hreint að þið sem kallið spennubreytana straumbreyta hafið rangt fyrir ykkur. Haha! Suckers!

    P.P.S. Spyrjið bara Ara Ólafsson ef þið trúið mér ekki.


    » 4 hafa sagt sína skoðun

    02.04.2005 23:58:26 / isaksb

    Merkimiðar henta ekki þöglum ópum...


    Ég hef ákveðið að segja skilið við þann raunveruleika sem ég hef lifað í undanfarin ár.

    Ég held nú á vit þess raunveruleika sem finna má í mínu eigin hugskoti, fjarri allri rökhyggju og öðrum heftandi þáttum.

    Verið sæl.

    Það var gaman að kynnast ykkur.

    Na sashna im albertiño garcena pour cantina.

    Graciolo tu seccira belocci canta fe.

    Bull.

    ...

    Ég hef nú endurfæðst í hugskoti mínu... héðan í frá er ég Brazzolio Fuendoega.

    Ég fæddist í Nepal en ólst upp á flakki um Himalaya fjöllin og er nú sestur í helgan stein í Bermúda.

    Þú ert lygari, vinur, þú ert ekki Fabio.

    Þú ert vinsemd hinna undirgefnu.

    Svipbrigði þín vinna ekki bug á sannfæringu minni.

    Þú nýtur þess nú að ég er staddur tugþúsundir kílómetra í burtu, í Bermúda... annars færi illa fyrir þér.

    ...

    Aðeins með því að sannfærast sjálfur getur þú sannfært umheiminn um að þinn raunveruleiki sé hinn eini sanni raunveruleiki.

    Án sannfæringar er allt uppspuni... tilgangslaus uppspuni sem orsakar eyðileggingu jafnt utan frá sem innan, þar til auðnin mætist í miðjunni, og myrkrið tekur völdin.

    Þegar svo er komið verður ekki aftur snúið.

    ...

    Mér er ekki hlátur í huga, en haltu áfram...

    Það voru slæmu fréttirnar sem hrintu þessu af stað... sökin er í raun og sanni þín.

    Þessa mun ég minnst um ómunatíð, vinur.

    ...

    Þó hef ég ekki mælt orð af vörum... aðeins af fingrum.

    Og þeir eru þöglir þrátt fyrir masið.

    Dixi


    » 6 hafa sagt sína skoðun

    02.04.2005 22:54:37 / isaksb

    Andskotinn


    ATH. Eins ótraustvekjandi og þetta hljómar þá mælum við sterklega með því að fólk skrifi textann fyrst í word, notepad eða öðru ritvinnsluforriti og afriti svo textann hingað yfir. Sumir hafa lent í þeirri óþolandi aðstöðu að horfa upp á heilar ritgerðir verða að engu :( aðeins vegna þess að langan tíma tók að skrifa greinina.

    Dixi


    » 0 hafa sagt sína skoðun

    20.03.2005 15:17:10 / isaksb

    BT eru flottastir


    Nú hefur BT náð hátindi í auglýsingum. Var að skoða frá þeim auglýsingabækling og á forsíðu hans er að finna bestu auglýsingu sem ég hef séð frá BT hingað til. Það er Medion C6 fartölva sem verið er að auglýsa og hún er í flesta staði merkileg ef marka má auglýsinguna. Því fékk ég ekki staðist að skanna inn bút af þessari auglýsingu til að deila með ykkur...

    Góð BT auglýsing

    Jæja hvar á maður að byrja? Það er sannað með óyggjandi hætti að nýji örgjörvinn er 22% hraðari með þessari frábæru skýringarmynd, hver getur efast eftir að sjá slíka mynd?! Þ.e.a.s. ef að myndin sýndi ekki í raun aukningu um 56,7% en ekki 22% og gæti þar að auki verið búin til í hvaða teikniforriti sem er á 6 sekúndum.

    TV out textinn er steypa frá upphafi til enda - ég veit ekki hvaða tæknibúnað BT menn kalla "sjónarp.harða" auk þess sem að restin af textanum í því boxi er eins og áður sagði samhengislaust kjaftæði.

    Að lokum held ég að það sé lítið gagn að þráðlausu neti ef það er byggt inní tölvuna þannig að það er ómögulegt fyrir nokkra aðra að tengjast því. Líklegt má telja að hér hafi BT menn meint að tölvan væri með innbyggðu þráðlausu netKORTI. En það er ekki nóg með þetta heldur er hér "að sjálfsögðu" á ferðinni nýjasti "54Mpbs staðallinn". Ég veit ekki til að það sé til, eða hafi nokkurn tíman verið til og reikna ekki með að verði nokkurn tíman til 54Mpbs staðall! Mpbs?! Sumsé megapyte ber second? Á þetta að vera fyndið?

    Ég held að það sem ég er að reyna að segja sé: BT! Fáið ykkur prófarkarlesara sem kann íslensku, er ekki lesblindur og hefur meiri tæknikunnáttu en steinaldarmaður.

    Dixi


    » 7 hafa sagt sína skoðun

    Síður: 1 2 3 4